29október

Helgin

Var hin fínasta... skennkti fótboltabullum bjór og fór í dýragarðs-afmæli og í rómantískan haustkvöldverð til Alberts sem endaði á skrallinu. Kíkið á myndirnar úr afmælinu á http://picasaweb.google.com/sigridurf06
29. október 2007 klukkan 09:28
Sigríđur Finnbogadóttir
2 athugasemdir
23október

Siggaligg fer á Airwaves

Miðvikudagur: Fyrsta kvöldið, nettur spenningur í gangi. Byrja á að hitta fylginauta mína á Prikinu í eitt Prik. Staðurinn er fullur af útlendingum með grænt armband að blaða í bæklingi. Byrjum á Nasa sem er pakkaður. Líður eins og sardínu í dós.. ákveð að fá mér bjór, sardínum finnst bjór góður. Krúttlegasta hljómsveit í heimi, Smoosh byrjar hátíðina mína. Þær eru æði! en ég nenni ekki að vera sardína lengi. Ákveðum að fara á Múgsefjun á Organ. Hittum fullt af fólki á Organ, nettur púki í hópnum. Á eftir Múgsefjun tekur Solid gold sviðið. Þeir eru hot! Kannski er þetta bjórinn að tala, ég er allavega mega hress! Klárum kvöldið á Terrordisco á Barnum. Fínt kvöld í alla staði.

Fimtudagur: Blundur eftir vinnu möst. Hleyp svo niðrá Nasa þar sem ég næ síðustu 3 lögunum með Slow Club. Þau eru klárlega með sjálfstraustið í lagi og ná ágætlega til hópsins. Hress feel good tónlist. Gellan stendur meðan hún trommar... stelpur sem tromma eru töff... og þessi engin undantekning. Svo er það Jenny Wilson og Grizzly bear í Hafnarhúsinu. Rólegt kvöld, maður vill spara sig fyrir átök helgarinnar.

Föstudagur: Nú byrjar ákvarðanafóbían. Glatað að þurfa að velja á milli hljómsveita en ég er mjög sátt við ákvarðanir kvöldsins. Byrja á Big bandinu hans Samma í Iðnó, hressir sætir nördastrákar með gleraugu í jakkafötum. Ekki slæmt! Svo kíki ég í Hafnarhúsið þar sem Trentemöller er að spila. Henrik Vibskov er með skíðahúfu og lýtur út eins og róni, frekar fyndið! Helena nær að draga mig á Reykjavík! og ég sé sko ekki eftir því!! Þeir eru svo skemmtilegir að það er alveg sama hvað ég sé þá oft spila, ég skemmti mér alltaf jafn vel... þeim tekst líka að gera mann svo glaðan. Eftir Reykjavík! drífum við okkur í Iðnó. Forgotten Lores eru að spila... ég hipp hoppast smá og mingla við reykingafólk útá svölum. Þá er aðalnúmer kvöldsins... Buck 65! heitari gaur hef ég varla séð á sviði... mjaðmahnykkir og læti hann nær upp góðri stemmingu, fær uppklapp og tekur aukalag. Enda kvöldið snemma... hvað er málið! hérna þekki ég mig ekki... kannski aldurinn farinn að segja til sín. Gefst upp og fæ mér puslu... eftir að maður fær sér pulsu er ekki hægt að gera neitt nema fara heim með skottið milli lappannna.

Laugardagur: Vakna kl 15 og byrja strax að vera menningarleg. Reykjavík er eins og iðandi heimsborg í nokkra daga og best að njóta þess í botn! Kaffi á barnum og svo byrjar röltið... Weapons í Skífunni, Mr. Silla & Mongoose og FM Belfast í Mál og Menningu og svo Reykjavík! í 12 tónum. Reykjavík! bjóða í ókeypis tónleika dót og bjór og party í æfingahúsnæði sínu. Þegar við komum er FM Belfast að æfa. Við drekkum bjór og dönsum eins og fávitar. Svo eru það þriðju tónleikar mínir með Reykjavík! á tveim dögum... samt alltaf fkn jafn gaman!! Er nett sveitt þegar ég labba heim á leið... og líka frekar full! Kvöldið rétt að byrja. Öss öss!

Laugardagskvöld: Kvöldið byrjar í Iðnó.. þýskt kvöld. Tied og Tickle trio og Ms. John Soda. Ms. John Soda er æði. Hún er svo krúttleg! Svo er skundað á Nasa þar sem drykkir kosta þyngd sína í gulli. Drekkum drykki úr gulli og perlum þangað til Ra Ra Riot byrja að spila. Þjótum á dangólfið og fikrum okkur fremst. Það eru gaurar sem halda að þeir séu á I Adapt og láta öllum illum látum og mosha við lítinn fönguð annara sem eru nálægt þeim. En Ra Ra Riot stendur fyrir sínu. Ég er lang spenntust fyrir næsta bandi sem er !!! . Og ég verð ekki fyrir vonbrigðum. Dansgólfið er svo stappað að við plöntum okkur vinstra megin uppi. En það skiptir ekki máli... allir dansa... Nasa er eitt heljarinnar dansgólf. Mögnuð stemming. Dansiparty af bestu sort. Fer sveitt og sæl útaf þessum tónleikum en það rennur örlítið af mér þegar ég sé röðina á KB, ekki séns að komast þar inn. Nema maður sé frægur eða sé að sofa hjá dyraverðinu. Kíki aðeins á Lídó og Boston og fer svo heim í háttinn... alveg búin á því! Það er svo erfitt að vera fabjúlus á Airwaves fjögur kvöld í röð. En þetta er ekki búið... eitt kvöld eftir. Ég ætla samt ekki að vera fabjúlus heldur mygluð og rónaleg.
Sunnudagur: Rölti til Heló og svolgra í mig einum Thule á leiðinni niður á Organ. Staðurinn verður fljótt stappaður. Aðalnúmer kvöldsins er hinn eiturheiti Buck 65! Hann tekur næstum sama sett og á fös kvöldinu, en það er alltílæ hann er svo heitur! svo er það hippa sveitin plants and animals... þeir eru svalir haha en ég er mega þreytt og fer snemma heim.

Það sem stendur uppúr: klárlega Buck 65 og !!!

23. október 2007 klukkan 11:43
Sigríđur Finnbogadóttir
1 athugasemd
24ágúst

Einu sinni fyrir ári síđan...

Var lítil stelpa sem hét Sigga. Og já...
Fyndið, ég var að fatta að fyrir nkl ári síðan var ég að gera akkúrat það sama, jafna mig eftir endajaxlatöku. Endajaxlataka nr. 2 var sumsé í dag. Engan vegin eins hræðileg og sú fyrri. Í þetta skipti sagði ég já við að eiga tennurnar... tennurnar mínar fengu að leika í slökkviliðsbíl með Sunnu Líf í dag og fara á rúntinn með Hokkískvísum. Þeim fannst það mjög gaman. Núna liggja þær undir koddanum mínum... ég er að vona að tannálfurinn gefi mér 15.000 kall fyrir þær. Það er virði þeirra í peningum. Gagnsemi þeirra í kjaftinum á mér var samt engin.
Annars er lífið gott, misgott samt, stundum pirrandi, stundum einmanalegt... en samt yfir höfuð mjög gott og skemmtilegt... samt frekar innantómt stundum.
Sumarið búið að vera mjög gott, komin ákvörðun um komandi vetur. Vinna og safna, safna í alvörunni! enginn skóli. Ég er ekki góð í skóla... veit ekki hvað mig langar að læra. Að læra bara til að læra er ekki minn stíll.
Síðustu tvær helgar voru ÆÐI! Gay Pride... mega snilld! Menningarnótt... mega mega snilld.
Gay pride: fór í bæinn með Helgu, Helgu, Svenna og Gulla. Veðrið var æði, stemmingin var æði. Svo var party á skúlagötu sem endaði á því að ég gat ekki djammað því ég var í skvísuhælaskóm sem ég var að kaupa mér fyrr um daginn... ekki góð ákvörðun en...
Menningarnótt: Vakin af litlum mongólítum sem voru mega spenntar yfir Latabæjarhlaupinu... fór í latabæjarhlaupið... mega gott veður, fékk að sjá uppáhalds nýja barnaefnið mitt á sviði (latibær) og labbaði svo niðrí bæ að hitta Helenu og drekka bjór... svo var bara rölt og drukkkið allt kvöldið! Endaði á því að fara á Gus Gus og dansa af mér rassgatið!

Ég er ennþá með skrítnar fóbíur... geitungar, köngulær, tær, fólk, börn (er samt að mildast í þeim málum... believe it or not!), tannlæknar humm og já margt fleira.
Mér finnst ég frekar stöðnuð eða bara ganga aftur á bak eða eitthvað... allavega ekki frammá við... eða að gera það sem maður "á" að gera... fara í skóla, flytja að heiman, verða ástfanginn, eignast barn, útskrifast og byrja í mettnaðarfullustarfi og trúlofa sig. Ég held ég sé gölluð vara... má ég skila mér?

Er að dusta rykið af seinfeld... djöfulsins snilldar þættir! og mér finnst fullt af þáttum í dag vera að nota stöff úr seinfeld. Seinfeld rokkar. Mæli með að allir dusti rykið af þeim. Fór líka í bíó í gær á BRILLIANT mynd, heitir Shortbus. Mæli eindregið með að allir fari á hana líka. Núna mæli ég eindregið með því að ég fari að sofa. Góða nótt.
24. ágúst 2007 klukkan 22:52
Sigríđur Finnbogadóttir
6 athugasemdir
28júlí

blogg!

vá hvað ég er búin að vera glataðasti bloggari í heimi í sumar! það er bara búið að vera svo gaman að ég nenni ekki að blogga :) og núna er sumarið bara að verða búið og æfingarnar að byrja eftir rúma viku!!! oh það verður svooo gott að komast á ísinn!!! Heima hjá mér ríkir stríðsástand þessa dagana... allt of mikið af fólki í allt of litlu húsnæði... en það er bara gaman... greyjið Ebba Dís skilur ekkert hvað frænka hennar er grumpy á morgnanna... en ég segji það nú ekki, það er mjög góð byrjun á deginum að sjá tvö skrípafés brosa og segja góðan dag við mann. Ég horfði á Simpson á íslensku í gærkvöldi... hvaða heimska er þetta!!! simpson á ekki að vera á íslensku!! núna horfir maður bara á downloada simpson þætti sem er nottla bara mjög fínt. Anyways.... komið nó í bili!
28. júlí 2007 klukkan 12:57
Sigríđur Finnbogadóttir
4 athugasemdir
21maí

sumar!

já það er sko komið sumar
þetta segji ég ekki vegna þess að ég þurfti að skafa snjó af bílnum mínum í morgun
heldur
afþví það er mússík í bílnum mínum aftur!
sjibbí!
gleðilegt sumar, komum á rúntinn!
21. maí 2007 klukkan 09:00
Sigríđur Finnbogadóttir
5 athugasemdir
20maí

Ţađ er gaman ađ vera ungur á lausu

Allavega oftast! ég er bara búin að vera rosa mikið í rugglinu síðan ég kom heim frá rúmeníu...
-hætti í skólanum
-fór að vinna í Spron
-búin að eignast nýjan vin
-hann heitir Bjór
-og ég hitti hann á hverju kvöldi
-svo dönsum við saman um helgar

En já sumsé mikið um bjórdrykkju og dunandi dans sem ég er alveg sátt við, ekki eins mikið um sæta stráka enda eru þeir bara vesen!
Trentemöller spilaði á kaffibarnum á föstudagskvöldið og það var fkn æði! ég dansaði af mér rassgatið.

Setti upp nýja myndasíðu
www.flickr.com/photos/solblom

Og já svo er hérna ein strætósaga í lokin:
Ég var að djamma síðasta lau kvöld, svaka afmælis og júróvisjon party hja Jóhönnu. Endaði heima hjá Helenu því eins og allir vita hata ég taxa röðina. Nema hvað, enginn var í standi til að sækja mig til hennar og mig langaði ógurlega heim að sturtast og taka úr mér linsurnar áður en ég mætti í vinnuna. Svo ég ákveð að taka STRÆTÓ sem ég hef btw ekki gert í möööörg ár. Þunn og heimsk rölti ég niður skólavörðustíginn og á hverfisgötuna og fer að skoða strætóáætlunina í skýlinu eins og versti túristi... nei enginn stoppar hérna sem fer heim til mín. Svo ég rölti á lækjartorg og skoða töfluna þar, jújú þarna er strætóinn sem stoppar heima... en á ég ekki að vera hinu megin við götuna? rölti yfir götuna, tek mér sæti við hliðiná tveimur rónum í strætóskýlinu og má bíða í 20mín eftir strætónum. Þegar guli bílinn kemur lokst þá spyr ég bílstjórann hvort ég sé ekki á réttri leið: "nei vina ég er að fara útá granda, þú átt að vera hinu megin við götuna!" svo ég rölti aftur yfir götuna og viti menn... ég er þá rétt búin að missa af rassgatinu á strætónum og má því bíða í 30min eftir næsta... ég var ekki alveg að nenna því svo ég mætti bara sjúskí karúski og hálf blind í vinnuna :) hversu heimskur getur maður verið ef manni tekst ekki einu sinni að taka strætó!!!
20. maí 2007 klukkan 11:55
Sigríđur Finnbogadóttir
Engin athugasemd
08apríl

komin heim

reyndar alveg vika síðan en... bara buin að vera í leti og djammi! árshátíð og læti. Ekkert búin að læra... sjeise mann, þetta er ekki að lúkka vel. En hei ég var að skoða Roskilde Festival í ár: Arcade Fire, Beastie Boys, Björk, Datarock, Klaxons, Mika, Muse, Peter Björn & John, Red hot chili peppers, Whitest boy alive, The Who... sjitt getur maður sleppt þessu??
08. apríl 2007 klukkan 10:49
Sigríđur Finnbogadóttir
3 athugasemdir
26mars

Ţar sem vampírurnar búa...

Hæhó... ég er stödd í Transylvaníu héraði í Rúmeníu! Fór útað borða með liðinu á pizzastað í dag... það kostaði mig heilar 300krónur!! Mér finnst það alveg fáránlegt... Búnar að keppa einn leik, viljum ekki tala meira um það... if you know what I mean! Núna er ég að fara á opnunarhátíðina. Bleh!

26. mars 2007 klukkan 16:37
Sigríđur Finnbogadóttir
Engin athugasemd
23mars

Siggaligg fer til Rúmeníu

á morgun!! ég er að fara til Rúmeníu á morgun! Ég er búin að fá treyjuna mína og ég er nr 6 (SEXY). Svosem alveg sátt við það þó ég hefði viljað halda númerinu mínu (12). Ef þið viljið fylgjast með þá ætlum við að blogga eikkva á www.blog.central.is/-isdrottningar , kemur í ljós hversu öflugar við verðum, stefnan er sett á verðlaunasæti :O)landsliðið

23. mars 2007 klukkan 15:14
Sigríđur Finnbogadóttir
Engin athugasemd
07mars

Tilvistarkreppa.is

Ég er að farast úr stressi hérna þessa dagana... og allir vita held ég hvernig ég díla við stress? nú ég læt eins og ekkert sé og læt eins og ég þurfi ekki að gera þessa hluti sem eru að gera mig stressaða, fel mig bakvið bjórglas með vinum á kaffihúsi... hvaða hlutir eru að gera mig stressaða veltið þið kannski fyrir ykkur?
- Ég er að fara til Rúmeníu með landsliðinu, ég er í engu formi og á engan pening. Ég þarf því að vinna mér inn pening og koma mér í form.
-Það er brjálað að gera í skólanum! Endalaus skilaverkefni og próf... og meðan ég er í Rúmeníu eru skil á tveimur verkefnum og eitt próf! ég þarf því að klára þessi verkefni áður en ég fer út.... ásamt því að gera öll hin verkefnin og lær fyrir prófin, OG á sama tíma er ég líka að æfa á fullu, keppa á fullu, vinna á fullu og allar helgar eru þéttbókaðar... ein í vinnu og keppa tvo leiki og ein í landsliðskamp fyrir norðan... svo er ég farin út!!
-Ofan á þetta bætis gífurleg tilvistarkreppa um hvað ég eigi að gera næsta sumar og næsta vetur... hvar ég vilji búa, hvað ég vilji læra, hvar ég vilji vinna. Möguleikarnir eru margir, einn er að flytja til Köben, einn er að halda áfram á sömu braut og fara að búa á stúdentagörðunum í Grafarholti, einn er að skipta um fag, svo er hægt að kaupa sér íbúð eða fara að leigja í 101. Langar mig að vera á íslandi í sumar og vinna á fullu eða langar mig að leika mér í útlöndum? Plís ef einhver hefur galdrasprota og svör fyrir mig er það vel þegið!
07. mars 2007 klukkan 15:00
Sigríđur Finnbogadóttir
7 athugasemdir

Leit

Auglýsing

Könnun

Hvort er betra

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...